Þetta líkar mér

Ánægður með að fólk láti í sér heyra. Finnst þetta í raun skrýtin ákvörðun en hvað er ekki gert í nafni hagræðingar? Þó svo að þetta sé eina bankastofnunin - það kom klárlega ekki fram í Excel skjalinu hjá yfirstjórn bankans. Nú er bara að taka alla peninga út úr Landsbanakanum sínum. Fólk á bara að drífa í því - þá geta þeir pottþétt lokað, enda engin viðskipti í gangi!!  Hvetja aðra banka stofnun til að opna útibú í staðinn!!!!
mbl.is Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki nær......

...að kalla þetta píp?

 

Sá að BBC var með þetta og þar kom margt skondið fram, en þeir eru farnir að nota etta nokkuð mikið í Englandi varðandi hitt og þetta. Lesa jafnvel upp píp (tístið) frá fólki í lok þáttar, eða við upphaf auglýsingahlés


mbl.is Evróvisjón með viðbættu tísti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta líka fína blað...

....prentað á Íslandi fyrir unga Íslendinga. renndi nú bara rétt yfir það í morgun þarf að glugga í það þegar ég kem heim aftur - sá þarna áhugaverða hluti, og aðra minna áhugaverða
mbl.is Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað helvíti!!!

Frábær íþróttamaður þessi elska, nei fyrirgefið ótrúlegur. Slatti af íslendingum að keppa þarna og gaman væri að fá fréttir af fleirum. En Annie er ótrúleg þarna set hérna fyrir neðan myndskeið sem fólk getur skoðað frá í dag. eflaust má finna meira á eþssari síður sem linkurinn er af er bara ekki búinn að skoða.
fékk þennan link frá Hrund Scheving Eyjastelpu sem býr í Danmörku og að keppa þarna, og kemur einmitt fram í myndskeiðinu.

http://games.crossfit.com/video/event-summary-europe-womens-workout-1


mbl.is Annie Mist slær öll met í Köben
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í fyrsta sinn....

Þessu hefur nú verið fleygt fram nokkrum sinnum síðustu ár, þ.e.a.s. að þessi leiktíð eða hin sé sú síðasta hjá sir Alex. Ekkert að því hefur gengið eftir hingað til en á endanum hlýtur einhver að hafa rétt fyrir sér.   ....en tíminn til að blása í lofgreinar um frábæran ferill þessa mikla meistara er ekki enn kominn þar sem hann er ekki hættur.
mbl.is Segir að Ferguson hætti eftir næstu leiktíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjahjal!!!

Sorglegt er að heyra þetta. Vita þessir menn ekki að stór hluti þjóðarinnar vinnur myrkrana á milli til þess eins að taka þátt í að greiða þær skuldir og óreiðu sem þeir komu yfir þjóðina? Halda menn eins og háttvirtur Bjarnir Ben  að enginn þurfi að greiða fyrir afskriftirnar hjá honum og öðrum? Þetta með afskriftirnar er ekki eins og þegar fólk missir sleikjó í gólfið, ja nema að þvíleiti að einhver þarf að þrífa upp brotin og jafnvel klístirð og það vitum við vel að háttvirtur B. Ben og aðrir þingmenn vilja helst ekki taka mikinn þátt í því.

Þingmenn eiga bara að fá sumarfrí eins og annað fólk í landinu - punktur. Er hræddur um að hinn almenni launamaður komist ekki upp með þær fjarvistir sem að þetta fólk tekur sér á köflum, sem betur fer. Það yrði eitthvað rekaldið þetta samfélag þá.

Frábært að hlusta á þessa kappa tala um að ekkert sé að frétta og ekkert að gerast, allt nánast steindautt, svo þegar þarf að bretta upp ermar í smástund væla þeir um sumarfrí!! Þeir eru kannski svona hræddir um að komast ekki á vaktir í makrílnum!!!


mbl.is Verður þingað fram í júlí?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæ hó jibb...........

Jæja hættið nú að þvarga um þessa kjarasamninga í miðjum viðræðum klárum þá og svo greiðum við um þá atkvæði. - Ekkert meira væl fyrr en samningur liggur klár á borðinu.

 Það er nóg af öðrum málum sem þarf að taka á, hvernig væri nú að sökkva sér ofan í þau kæru þingmenn?


mbl.is Tillaga Vigdísar felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýnar í Frostaskjólinu

Það hefur hlýnað hægt og rólega í Frostaskjólinu síðustu daga. Það virðist vera að koma mynd á lið Rúnars Kristinssonar. Nú byrja menn að hræðast þá og hafa kannski ástæðu til. Hef einhvern veginn ekki sömu trú á fimleikafélaginu var samt að vona að þeir yrðu sprækari en þeir röndóttu í Frostaskjólinu í sumar. EN það er svo sem langt í land og allt getur gerst - við vonum það besta.
mbl.is KR vann FH í Frostaskjólinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!

Er fólk búið að finna eitthvað skárra til að taka við? Endilega látið mig vita. Sé lítið annað en hörmung þessa dagana alveg sama í hvaða átt ég lít.
mbl.is Þúsund vilja þingrof og kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp úr sandkassanum væna!!!

Já ekki get ég sagt að ég sé sammála háttvirtri þingkonunni. Er ekki alveg nóg að greiða um þetta atkvæði einu sinni við fáum að greiða um þetta atkvæði þegar ferlinu er lokið - Vigdís greyið alveg úti á túni, og ekki í fyrsta sinn!!!
mbl.is Atkvæðagreiðslan öllum í hag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við fáum að kjósa......

....svolítð spes að leggja í sund yfir Ermasundið en snúa svo bara við þegar maður er að koma að landi hinu megin af því að það náðist ekki að kveðja alla áður en lagt var af stað!!!!!

Klárum nú þessar samningaviðræður áður en við förum að greiða atkvæði þá er hægt að afgreiða þetta bara í eitt skipti fyrir öll.


mbl.is ESB fari í þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endilega höldum í verðtrygginguna!!!

pappi, um pappa frá pappa til skítakappa - höfum hausinn endilega í sandinum sem lengst.

Verðtryggðu lánin munu hækka núna um næstu mánaðarmót þar sem Man. City varð enskur meirstari. það leiddi til mikillar eyðslu á bensíni í mið austurlöndum fjær og framleiðsla á búningum merktum Man City tók kipp og því hefur eftirspurn eftir polyester og hvað þessi efni heita öll aukist og því miður verða íslenskir neytendur íkjölfarið að sætta sig við hækkun a lánum sínum!!!!!

Ísland bezt í heimi!!!!


mbl.is „Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frændi stjarna hjá Stjörnunni!!!

Atli Yo í ham í inn undir Stjörnubúningnum og sallar inn mörkum þessa dagana. 3 kvikindi skráð í kvöld, ekki gerst síðan á æfingu fyrir einherjum árum!!!!Ánægjulegt að heyra og gaman að piltur virðist vera að ná að hrista af sér þessi meiðsli sem hafa plagað hann síðustu tímabil. Vona að hann eigi 20 fína leiki í sumar. Þarf ekkert að segja neinum á móti hverjum ég vona að honum gangi ekki eins vel, ja nema að okkur gangi öfga vel í þeim leikjum. Til hamingju karlinn vel að verki staðið. .....Grindvíkingar virðast ekki vera vaknaðir sem er óvanalegt af liði sem Gaui Þórðar þjálfar. Hinn möguleikinn er að liðið sé slakt. Get ekki dæmt um hvort er nær því að vera rétt, hef ekki séð þá spil og það verður örugglega nokkuð þangað til og þá gæti staðan verið orðin allt önnur!!!! ......Þangað til og eftir það ætla ég bara að halda með ÍBV, en þar þurfa menn líka að taka sokkana upp
mbl.is Atli með þrennu í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband